Mánudagurinn áttundi áttundi
Ég olli ómældum skemmdum á umhverfinu í dag! litli landvörðurinn grætur mikið einhversstaðar inní mér yfir þessu öllu saman. Planið var bara að fara út í kannt og kíkja á gps-inn og ath hvort mælirinn væri ekki í nánd þvi ég sá hann ekki... afskaplega simple... smeigði mér hægt og rólega útí kannt.. en úps! jarðvegurinn var svo gegn sósa af vatni.. sá reyndar seinna að eg var á huge mýrarsvæði... alla vega... bíllinn tók þessari breytingu ekki betur en svo en hann skeitaði sér niður í mýrina... fékk smá auka hjarta bank.. en ætlaði svo aldeilis að bjarga mér.. og bílnum.. úr þessu... hhhmmmm allt sat fast... eftir svoldið spól og jarðvegsskemmdir komst eg áfram en ekki uppá veginn.... í stuttu máli þá eiðilagði eg svona 10 metra langan kafla með fram þjóðvegi eitt... spól fram og til baka! þýddi ekki lengur.. gafst upp og stoppaði næsta bíl. aaaa Gæl!! sem sagt þjóðverjar.. Hans settist undir stýrið og ég og Helga íttum eins og MF... og jeijj það tókst. Fylgi gallinn er bara að bíllinn safnaði mikið af steinum í þessu ævintýri... þvi mæti eg með rosa entrece hvar sem eg kem...og hitnaði kanski pínu meira en eðlilegt er....
Ég er komin í Skaftafell.. fékk gistingu þar sem sjálfboðaliðarnir hísast þegar þeir eru hér......á bara eftir að finna þjóðgarðsvörðinn og komast í hús... það er pínu ves að eg skuli ekki finna hann.. en það hlítur að reddast fyrir myrkur?? þvi sit eg hérna í bílnum og fæ mér að reykja með öllu þessu hreyna lofti.... þetta getur kallast sannkallaður jöfnuður????
Fékk gistingu í Betlehem :) góður félagsskapur og drukkið mikið af kókamjólk.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home